Viltu í alvörunni deyja?

Hefur þú skaðað sjálfan þig?

Þarfnast þú hjálpar tafarlaust?

Hefur þú áhyggjur af einhverjum sem gæti verið í sjálfsvígshættu?

Syrgir þú ástvin?

Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna 10.sept 2019

Málþing: Staldraðu við – Stöndum saman gegn sjálfsvígum

Haldið í húsakynnum Decode við Sturlugötu 8, kl.15-17

Dagskrá

15.00
Ávarp fundarstjóra Einar Þór Jónsson, formaður Geðhjálpar

15.10
Aðgerðaráætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi. Alma Möller, landlæknir, fjallar um stöðu og næstu skref

15.30
Öryggisvegferð geðsviðs: Nýtt verklag við mat og viðbrögð við sjálfsvígshættu. Berglind Guðmundsdóttir, yfirsálfræðingur á geðsviði LSH

Kaffi og kleinur

16.10
Hvernig getur þú veitt syrgjendum umhyggju og stuðning? Sr. Halldór Reynisson frá Nýrri dögun, stuðningi í sorg

16.30
Tían, taktu skrefið. Fulltrúar Útmeða kynna og sýna sýnishorn stuttra myndbanda úr nýju geðræktarátaki Útmeða fyrir ungt fólk

16. 50
Samantekt

17.00
Lok

Kyrrðarstundir

Kyrrðarstundir í minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi verða haldnar í Dómkirkjunni í Reykjavík kl. 20, í Sandgerðiskirkju (safnaðarheimili) á Suðurnesjum kl. 20; í Selfosskirkju kl. 20 í samvinnu við Hveragerðis- og Eyrarbakkaprestaköll; Í Egilsstaðakirkju kl. 20 og í Glerárkirkju á Akureyri einnig kl. 20. Samverur þessar eru hugsaðar fyrir öll þau sem eiga um sárt að binda vegna sjálfsvíga. Allir eru velkomnir á viðburðina og er aðgangur ókeypis.

Dagskrá kyrrðarstundar í Dómkirkjunni þann 10. sept kl.20

Hrönn Harðardóttir geðhjúkrunarfræðingur leiðir stundina

Sr. Bjarni Karlsson flytur hugvekju

Bubbi Morthens syngur nokkur lög

Sara Óskarsdóttir, aðstandandi, segir frá reynslu sinni af því að missa móður sína í sjálfsvígi

Kveikt verður á kertum í minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi

Ólafur Elíasson organisti flytur hugljúfa tóna í upphafi og lok kyrrðarstundar