Sjálfsskaði
Um sjálfsskaða
Sjálfsskaði er þegar einstaklingur skaðar sjálfan sig viljandi annað hvort með áverka á húð eða inntöku efna.
Einstaklingur sem er að skaða sig gerir það oftast til að lina andlega vanlíðan og/eða takast á við erfiðar tilfinningar sem hann ræður ekki við.
Sjálfskaði er algengari hjá unglingum en hjá fullorðnum en þó á sjálfskaði sér einnig stað hjá fullorðnum einstaklingum.
Þeir sem eru að skaða sig upplifa það sem einu leiðina sem geti hjálpað þeim að ráða við erfiðar tilfinningar og það getur verið rétt upplifun en það er mikilvægt að vita að það eru til aðrar leiðir og það er hægt að fá hjálp.
Ef einstaklingur er að skaða sig er mikilvægt fyrir hann að leita til fagfólks til að fá aðstoð með tilfinningavanda og finna leiðir til að takast á við erfiðar tilfinningar á annan hátt en að skaða sig.
Sjálfsskaðahegðun – Algengar spurningar og svör (bæklingur BUGL)
Sjálfsskaðahegðun – Upplýsingar fyrir unglinga (bæklingur BUGL)
Er unglingurinn þinn að skaða sig?
Það er mikilvægt fyrir foreldra og aðstandendur að skilja að sjálfsskaði er leið fyrir unglinginn til að “lifa af” erfiðar tilfinningar og það veitir unglingnum tímabundinn létti þegar hann skaðar sig og erfiða tilfinningin sem var til staðar virðist viðráðanlegri um tíma.
Það að skilja hegðunina er ekki það sama og samþykkja hana. En um leið og foreldrar skilja hana þá hjálpar það til með framhaldið og eykur líkurnar á því að unglingurinn leiti til foreldra þegar hann finnur þörf fyrir sjálfskaða.
Það fyrsta sem foreldrar geta gert ef þau fá upplýsingar um að unglingurinn sinn sé að skaða sig er að tala við unglinginn. Það er mikilvægt að foreldrar haldi ró sinni yfir þessu og eigi gott samtal við unglinginn. Það þarf að fá upplýsingar um af hverju hann haldi að hann skaði sig, hvort að hann sé búinn að vera að skaða sig lengi, hvaða tilfinningar hann telur sig ekki ráða við og hvort að hann sé tilbúinn að finna aðrar leiðir til að ráða við erfiðar tilfinningar. Ef samtalið við unglinginn dugir ekki er hægt að leita á heilsugæsluna til læknis eða hjúkrunarfræðings sem geta þá vísað honum í viðeigandi úrræði.
Í samtalinu við unglinginn er mikilvægt að fá einnig upplýsingar um hvort að hann sé með hugsanir um að vilja ekki lifa, ef þær eru til staðar að þá þarf að spyrja unglinginn hvort að hann hafi hugsað um leiðir til að deyja. Ef unglingurinn hefur einungis fengið hugsanir um að vilja ekki lifa en ekki hugsað um leiðir er mikilvægt að leita til fagaðila í framhaldi svo að hann fái viðeigandi aðstoð, oft gott að byrja á heilsugæslunni. En ef það eru sjálfsvígshugsanir til staðar og hann hefur hugsað um leiðir til að deyja að þá þarf að leita aðstoðar strax og þurfa foreldrar að hafa samband við 1770 (símaþjónustu heilsugæslunnar) eða bráðamóttöku utan opnunartíma heilsugæslunnar.
Sjálfsskaðahegðun – gagnleg viðbrögð foreldra (bæklingur BUGL)
Er einhver nákominn þér að skaða sig?
Ef þú veist um einhvern nákominn þér sem er að skaða sig er mikilvægt að þú ræðir það við hann að þú hafir tekið eftir því. Fyrst þarftu að spyrja hvort að hann sé að fá aðstoð við þessum vanda og ef hann er ekki að fá aðstoð getur þú boðist til að hjálpa honum að sækja hana t.d. með því að leita á heilsugæslu.
Það þarf ekki að hafa áhyggjur af því að spyrja út í þetta og oft finnur einstaklingurinn fyrir létti að geta rætt þetta við einhvern.
Staðreyndir um sjálfsskaða – Fyrir ungt fólk, vini þeirra og fjölskyldur (bæklingur BUGL)
Sjálfsvígshugsanir
Sjálfsskaði
Sjálfsvígstilraun
Hvert get ég leitað?
Í kjölfar sjálfsvígs