Viltu í alvörunni deyja?

Hefur þú skaðað sjálfan þig?

Þarfnast þú hjálpar tafarlaust?

Hefur þú áhyggjur af einhverjum sem gæti verið í sjálfsvígshættu?

Syrgir þú ástvin?

Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga, 10.sept 2021

Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er 10. september. Tilgangur dagsins er að stuðla að forvörnum sjálfsvíga og minnast þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi.

Í ár eins og undanfarin ár verða samverustundir víða um land í tilefni dagsins, sjá viðburð https://www.facebook.com/events/193912079473148?ref=newsfeed

Í tengslum við daginn verður hugtakið stuðningur í kjölfar sjálfsvígs „postvention“ sérstaklega kynnt en hugtakið er nú samþykkt af Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni sem mikilvægur liður í sjálfsvígsforvörnum. Í dag er viðurkennt að bæði forvarnir sjálfsvíga þ.e sem miða að því að koma í veg fyrir sjálfsvíg og stuðningur við aðstandendur og fyrirbyggja þeirra heilsutjón eru samtvinnaðir mikilvægir þættir í sjálfsvígsforvörnum.

Kveikjum á kerti þann 10.september kl.20
Til að minnast þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi
Til að tendra ljós til þeirra sem á þurfa að halda
Til stuðnings sjálfsvígsforvörnum