Viltu í alvörunni deyja?

Hefur þú skaðað sjálfan þig?

Þarfnast þú hjálpar tafarlaust?

Hefur þú áhyggjur af einhverjum sem gæti verið í sjálfsvígshættu?

Syrgir þú ástvin?

Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga, 10.sept 2020

Á Alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga í ár er lögð áhersla á að standa saman gegn sjálfsvígum. Af sóttvarnarástæðum verður ekki málþing eða minningardagskrá í Dómkirkjunni eins og undanfarin ár. Þó ekki sé minningardagskrá í Dómkirkjunni, þá verður hún opin frá kl. 20-21 og mun Gunnar Gunnarsson píanóleikari og organisti flytja ljúfa tóna á þeim tíma. Öllum er frjálst að koma og kveikja á kerti í kirkjunni og eiga þar minningarstund. Í Glerárkirkju á Akureyri verður einnig opin kirkja á vegum Samhygðar, Grófarinnar og Píeta. Þar verður hægt að kveikja á kerti í minningu ástvinar og þyggja kaffisopa. Í Egilsstaðakirkju verður samverustund kl.20 þar sem starfsmenn Brunavarna Austurlands munu meðal annars deila reynslu sinni. Í Selfosskirkju er samverustund og dagskrá kl.20 ogí Sangerðiskirkju er minningarstund kl.20.Við hvetjum einnig þá sem heima eru til að kveikja á kerti. Í Akraneskirkju verður einnig kyrrðarstund.

Kveikjum á kerti kl.20
Til að minnast þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi
Til að tendra ljós til þeirra sem á þurfa að halda
Til stuðnings forvarna gegn sjálfsvígum

https://www.facebook.com/events/759491941537373